Þjórsá.com
Umræðuvefur um virkjanir í Þjórsá

Staðan | Greinar | Myndir | Spjall | Skráasafn | Hafa samband | Innskráning

Staðan

Skrá mig
Sjá fréttalista
Sjá allar fréttir

Neitar að staðfesta aðalskipulag - 2009-05-14 16:11:54
Svandís Svavarsdóttir, nýr umhverfisráðherra Vinstri grænna, neitar að staðfesta breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps og segir, að kynna þurfi breytinguna betur fyrir íbúum sveitarfélagsins. Nánar hér.

Ráðuneyti sinnti ekki rannsóknarskyldu - 2009-03-29 17:09:15
Tala þarf efnislega afstöðu til þess í samgönguráðuneytinu hvort samkomulag Landsvirkjunar við Flóahrepp, um gerð aðalskipulags vegna Urriðafossvirkjunar, standist ákvæði skipulags- og byggingarlaga. Með öðrum orðum, hvort Landsvirkjun hafi „keypt sér" skipulag í Flóahreppi. Í nýju áliti umboðsmanns Alþingis kemur fram að ráðuneyti hafi hvorki sinnt rannsóknarskyldu sinni né reglum stjórnsýslulaga um málshraða með fullnægjandi hætti, í kærumáli ábúenda í Skálmholti vegna samkomulagsins. Nánar hér. Álit umboðsmanns má lesa hér.

Áskorun frá Sól á Suðurlandi - 2009-03-01 16:03:27
Sól á Suðurlandi hefur birt áskorun til nýrrar ríkisstjórnar, hana má lesa hér.

Sveitarstjóra sagt upp - 2009-02-25 19:11:21
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gekk fyrirvaralaust frá starfslokum Sigurðar Jónssonar, sveitarstjóra, í gær. Í Sunnlenska fréttablaðinu kemur fram að blogg sveitarstjórans og ofreiknuð laun höfðu áhrif á brotthvarfið. Nánar hér.

Urriðafossvirkjun á skipulag - 2008-12-18 18:05:53
Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt tillögu að aðalskipulagi Flóahrepps 2006- 2018 í fyrrum Villingaholtshreppi. Þar á meðal er fyrirhuguð Urriðafossvirkjun að því er kemur fram í héraðsfréttablaðinu Suðurglugganum. Nánar hér.

Dómur fallinn - 2008-09-27 14:37:04
Íslenska ríkið og Landsvirkjun voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur sýknuð af kröfu eiganda jarðarinnar Skálmholtshrauns í Flóahreppi um að viðurkennd verði með dómi að vatnsréttindi íslenska ríkisins að Þjórsá í landi Skálmholtshrauns falli niður. Nánar hér.

Röð framkvæmda breytt - 2008-09-06 12:58:48
Landvirkjun hefur hraðað vinnu við Búðarhálsvirkjun og sett undirbúning Bjallavirkjunar af stað. Í fréttabréfi Landsvirkjunar segir að fyrirtækið muni breyta röð framkvæmda vegna tafa sem rekja megi til málaferla. Eigandi jarðarinnar Skálmholtshrauns hefur höfðað mál gegn ríkinu, Landvirkjun og Flóahreppi vegna áforma um virkjanir í neðri hluta Þjórsár. Nánar hér.

Íbúar að sögn beittir valdi - 2008-08-30 21:47:45
Samtökin Sól á Suðurlandi segja íbúa við Þjórsá mismunað og beitta opinberi valdbeitingu. Samþykkt aðalskipulag Skeiða-og Gnúpverjarhrepps er nú til skoðunar hjá Skipulagsstofnun. Sól á Suðurlandi segja að í ljós hafi komið að skipulagsvinnan var ekki unnin í héraði eins og almennt gerist. Aðalskipulag sem gerir ráð fyrir þremur virkjunum í neðri hluta Þjórsár er unnið að ósk og á kostnað Landsvirkjunar. Nánar hér.

Ítrekuðu andstöðu við virkjanir - 2008-07-28 08:59:26
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, og Ellert B. Schram, alþingismaður, ítrekuðu á fundi á Suðurlandi í gærkvöldi andstöðu sína við virkjanaframkvæmdir í neðri hluta Þjórsár. Um var að ræða fund, sem hópur samfylkingarfólks átti með íbúum á svæðinu. Nánar hér.

Samfylkingarfólk skoðar neðri Þjórsá - 2008-07-28 08:57:57
Á fjórða tug Samfylkingarfólks sem styður verndun neðri Þjórsár heimsækir í kvöld íbúa á svæðinu og fer í skoðunarleiðangur um svæðið sem fer undir vatn ef virkjunin verður að veruleika. Virkjunaráform í neðri Þjórsá hafa mætt andstöðu heimamanna. Nánar hér.

Aðsendar greinar - 2008-07-07 17:18:44
Rannsaka ber þátt Þjórsár í lífríki undan ströndum Íslands, Samfylkingunni ber skylda til að virða kosningaloforð sín og þingmaður hennar efast stórlega um virkjanir í Þjórsá, að því er fram kemur í þremur aðsendum greinum í Morgunblaðinu í dag.

Þórunn gegn álverum - 2008-06-28 11:19:22
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra segir að tvö ný álver séu andstæð stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum. „Það liggur algjörlega fyrir. Stefnumörkun stjórnvalda til 2050 er um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda um 50 til 75 prósent,“ segir hún. Þórunn segist ósammála þeirri skoðun Össurar Skarpshéðinssonar iðnaðarráðherra að íslendingar muni ná þeim skilningi alþjóðasamfélagsins að álver á Íslandi séu umhverfisvænni en álver sem knúin eru með kolum í viðræðum um lofslagssamninginn. „Það er hans skoðun. Ég met stöðuna með allt öðrum hætti í alþjóðasamfélaginu.“ Þórunn segist hvorki styðja uppbyggingu álvers á Bakka, í Helguvík né annars staðar. Fréttina má lesa hér.

Af skipulagsmálum - 2008-06-25 22:23:24
Hvamms- og Holtavirkjun, efri tvær virkjanirnar af þremur í Neðri-Þjórsá, hafa verið settar á aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Flóahreppur hefur einnig auglýst aðalskipulag með Urriðafossvirkjun. Eru allar þrjár virkjanirnar því komar á aðalskipulag viðkomandi sveitarfélaga. Þó hefur ekki verið samið við alla landeigendur og segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar að "[við] erum búin að semja við nokkra og eigum eftir að semja við ýmsa, bæði eigendur að jörðum þar sem Títansamningarnir gilda og landeigendur sem eiga sjálfir vatnsréttindi." Að fengnum leyfum verður fyrst ráðist í byggingu Búðarhálsvirkjunar, og svo í virkjanirnar neðar í Þjórsá. Meðal kaupenda að orkunni er álverið í Straumsvík. Sigþrúður Jónsdóttir náttúrufræðingur og íbúi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, kveðst ekki sjá hvaða hagsmuni hreppurinn hafi af því að virkjanirnar verði reistar enda komi engar beinar tekjur inn í sveitarfélagið vegna þeirra. Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, segir einnig að fólk sé búið að fá "nóg af gömlu lausnunum" og að það sé "hægt að nýta orkuna í margt annað en að knýja áfram gamaldags stóriðju." Vinstri-Grænir gagnrýna aðfarir Landsvirkjunar og ósvífni ráðherra, og heita ráðherrum Samfylkingar stuðning sinn í að efna kosningaloforð um stóriðjustopp. Það getur tafið fyrir byggingu virkjananna að Landsvirkjun, ríkinu og Flóahreppi hefur verið stefnt vegna vafa á eignarhaldi ríkisins á Títansamningum um vatnsréttindi við Þjórsá. Sigþrúður Jónsdóttir segir einnig að fleiri málsóknir séu í uppsiglingu af hendi landeigenda. Fréttirnar má lesa hér, hér, hér, hér, hér, hér, hér, hér og hér.

Frá sumarbústaðaeigendum - 2008-06-10 22:58:41
Í dag þann 6. þessa mánaðar var eftirfarandi samþykkt send forstjóra Landsvirkjunar ásamt ráðherrum iðnaðar- og orkumála, umhverfismála og fjármála.
Félag sumarbústaðaeigenda Lónsholti samþykkti á aðalfundi sem haldinn var á landi félagsins við Þjórsá þann 31. maí að taka undir mótmæli eigenda jarða á austurbakka Þjórsár sem lögð voru fyrir forstjóra Landsvirkjunar vegna fyrirhugaðrar Urriðafossvirkjunar þann 27. mars s.l. og tekur jafnframt undir þá almennu skoðun að virkjanir í byggð séu ótímabærar með öllu, ekki hvað síst á þessu svæði sem er þvert á virku misgengi jarðlaga auk þess sem umhverfis- og sjónmengun ásamt stórfelldum lands- og eignaspjöllum yrði veruleg um alla framtíð í grónum byggðum suðurlands. (Nú þegar þetta er skrifað hefur náttúra landsins minnt rækilega á afl sitt rétt eina ferðina og er vert að hafa það í huga. Tvær brýr á Ölvusá skókust til á legum og það gerði gamla brúin á Þjórsá einnig í skjálftanum fyrir átta árum. Hefur nokkur heyrt af stíflumannvirkjum á gúmídempurum)? Hvað er vistvæn framleiðsla orku vistvæn ef gengið er að óþörfu á vistkerfið, landið og umhverfi margra sveitarfélaga á einu bretti, með þeim skerðingum sem því eru samfara fyrir fólkið sem þar býr og vill búa um ókomin ár? Fundurinn skorar jafnframt á þá heiðursmenn fjármálaráðherra, ráðherra iðnaðar- og orkumála og umhverfisráðherra að hafna útgáfu heimilda fyrir virkjuninni en beina kröftum Landsvirkjunar til fjalls þar sem Búðarhálsvirkjun bíður þolinmóð. Og svo bíður ósinn þess að innan tíðar verði gerlegt að virkja afl Þjórsár í þann endann án stórfelldra náttúruspjalla.


Landsvirkjun og ríkinu stefnt - 2008-06-03 13:29:56
Landeigandi við neðri hluta Þjórsár, Daniela Schmitz í Skálmholtshrauni, hefur stefnt fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisins og forstjóra Landsvirkjunar fyrir hönd fyrirtækisins, vegna áforma um að reisa þrjár virkjanir í Þjórsá, Urriðafossvirkjun, Holtavirkjun og Hvammsvirkjun. Nánar hér.

Ríkið stöðvi Landsvirkjun - 2008-05-11 17:22:18
Landeigendur við neðanverða Þjórsá vilja að ríkisstjórnin fyrirskipi Landsvirkjun að hætta undirbúningi Urriðafossvirkjunar. Talsmaður þeirra segir málið alvarlegt því þótt Landsvirkjun hafi ekki enn farið fram á eignarnám vinni fyrirtækið að undirbúningi virkjunar þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu meirihluta landeigenda og íbúa. Nánar hér.

Friðrik ekki með umboð fyrir eignarnám - 2008-05-08 15:49:55
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra segist ekki samþykk því að eignarnámi verði beitt við Þjórsá til þess að Urriðafossvirkjun verði að veruleika. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Atla Gíslasonar, þingmanns Vinstri - grænna. Þá sagði ráðherra að forstjóri Landsvirkjunar hefði ekkert umboð frá ríkisstjórninni til eignarnáms þótt hann héldi því fram. Fréttina má sjá hér og lesa hér og hér.

Landsvirkjun gagnrýnir - 2008-05-05 19:31:06
Landsvirkjun gagnrýnir hvernig staðið er að fræðaþingi um Urriðafossvirkjun, sem áhugafólk um samfélags- og umhverfismál í Flóahreppi hefur boðað til í Þingborg í kvöld. Segir Landsvirkjun að þessi fundur sé ekki heppilegur vettvangur til að koma á framfæri upplýsingum um Urriðafossvirkjun. Nánar hér og hér.

Vilja orkuna í heimabyggð - 2008-04-30 00:27:11
Forsvarsmenn fjögurra sveitarfélaga í kringum Þjórsá samþykktu á fundi sínum í dag koma á fót framkvæmdanefnd til þess að vinna að því að orkan úr fyrirhuguðum virkjunum í neðri hluta Þjórsár verði nýtt til atvinnuuppbyggingar í sveitarfélögunum fjórum. Nánar hér.

Landsvirkjun greiðir Flóahreppi milljónir - 2008-04-04 15:11:52
„Ég myndi kalla þetta mútur. Það er bara þannig," segir Jón Árni Vignisson, bóndi í Skálmholti í Flóahreppi. Þar vísar hann til fjörutíu milljóna króna eingreiðslu Landsvirkjunar til Flóahrepps, samkvæmt samkomulagi um að Urriðafossvirkjun verði sett á aðalskipulag hreppsins. Nánar hér.
Heimsóknir í dag: 6